Brúin
Í Brúnni standa reyndir sérfræðingar vaktina - svokallaðir Driftarar - og styðja þétt við frumkvöðla. Þar getur þú hitt reynda sérfræðinga úr ólíkum áttum og færð ómetanlega innsýn og leiðsögn strax í upphafi ferðarinnar.
Driftarar eru m.a. sérfræðingar í viðskiptaþróun, markaðsmálum, lögfræði, endurskoðun, sjálfbærni og fjárfestingum - og allir á einum stað!
Í Brúnni færðu ekki aðeins aðgang að Drifturum heldur einnig að öflugu tengslaneti háskólasamfélagsins og fyrirtækja á svæðinu sem vilja vinna með frumkvöðlum.

















