Driftarar

Driftarar eru reynslumiklir sérfræðingar og öflugir samstarfsaðilar Driftar EA sem styðja frumkvöðla við að þróa hugmyndir sínar og byggja upp fyrirtæki. Þeir koma úr ólíkum áttum og búa yfir fjölbreyttri sérþekkingu á sviðum á borð við viðskiptaþróun, markaðsmál, lögfræði, endurskoðun, einkaleyfum, sjálfbærni og fjárfestingum.


Með samstarfinu fá frumkvöðlar Driftar aðgang að verðmætri þekkingu, ráðgjöf og leiðsögn sem nýtist strax frá upphafi. Driftarar miðla jafnframt reynslu sinni með reglulegum fundum með frumkvöðlum í Hlunninum og fræðslu- og innblásturserindum fyrir frumkvöðla og atvinnulífið. Hjá Drift EA færðu ekki aðeins aðgang að Drifturum heldur einnig að öflugu tengslaneti háskólasamfélagsins og fyrirtækja á svæðinu sem vilja vinna með frumkvöðlum.

Ráðgjafar