Hlunnur

Hvað er Hlunnur?

Hlunnurinn er vettvangur innan DriftarEA þar sem verkefnið þitt fær heildstætt utanumhald og þú og/eða þitt teymi fær þjálfun, ráðgjöf og hvatningu til að taka verkefnið á næsta stig. Innifalið er skrifstofurými, aðgangur að sérfræðingum, aðstoð við fjármögnun, vinnustofur og öflugt tengslanet í allt að 12 mánuði. 


Aðeins þau verkefni sem fara í gegnum Slipptökuna geta komist í Hlunninn.

Nýttu þér kosti Hlunnsins:

  • Aðgangur að skrifstofu- og samvinnurýmum hjá DriftEA.
  • Tækifæri til skapandi samskipta í lifandi nýsköpunar- og frumkvöðlaumhverfi Messans - suðupotti hugmynda og skapandi fólks.
  • Kynning verkefnisins á kynningardögum - tækifæri til tengslamyndunnar.
  • Vikuleg einstaklingsþjálfun frá reyndum Drifturum til að halda þér við efnið.
  • Í völdum tilfellum aðgangur að fjárfestingarsjóði. 
  • Hagnýtar lausnir reyndra sérfræðinga sem vinna náið með þér til að yfirstíga hindranir áskoranir og ná markmiðum þínum.
  • Þátttaka í vikulegum vinnustofum, fundum um lögfræði, fjármögnun, teymisuppbyggingu, markaðssetningu, vöxt og vöruþróun.
  • Aðgangur að (ævilöngu!) samfélagi frumkvöðla og sérfræðinga sem veitir áframhaldandi stuðning, úrræði og tækifæri til enn frekari tengsla sem Driftari.