Stökkfiskur

Stökkfiskur vinnur með íslenskt hráefni til að skapa verðmæti og útflutningsafurðir. Stökkfiskur er próteinríkt fiskisnakk sem sameinar hefðir harðfisks við nútímalega framleiðslutækni. Verkefnið felur í sér þróun, framleiðslu og markaðssetningu bæði innanlands og erlendis með áherslu á gæði, sjálfbærni og hollustu.


Teymið á bakvið Stökkfisk samanstendur af Sölva Steini Helgasyni, Sigrúnu Finnu Snædal, Zöru Gerson og Magnúsi V. Snædal.

Hafa samband við verkefni

Teymin í Hlunninum