Sea Thru
Sea Thru snýr að því auka rekjanleika sjávarafurða í gegnum alla virðiskeðjuna, eða nokkurskonar "Google maps fyrir fisk". Fyrirtækið vill bjóða upp á gagnsæi þannig að neytandinn geti vitað hvort varan sem hann sé að kaupa hafi verið á heimshornaflakki en æ algengara er að fiskur sem veiddur er í Evrópu sé fluttur til Kína eða annarra fjarlægra landa til vinnslu og síðan aftur til Evrópu þar sem hann er seldur. Með því að veita neytendum aðgang á auðveldan hátt að þessum upplýsingum er þeim gert kleift að taka upplýsta ákvörðun. Jafnframt stuðlar aukinn rekjanleiki og gagnsæi að því að þeir framleiðendur sem stunda sjálfbærari fullvinnslu sjávarafurða fái sanngjarnara verð fyrir sínar vörur.








