Kveikjan - Ignite Nordic á Íslandi
Kveikjan er íslenski hluti Ignite Nordic, norræns vettvangs sem tengir rótgróin fyrirtæki og opinbera aðila við frumkvöðla og sprotafyrirtæki. Fyrirtækin og opinberir aðilar koma með raunverulegar áskoranir úr rekstrinum og við finnum frumkvöðla á Íslandi og á Norðurlöndunum sem geta leyst þær.
Aðferðafræðin var þróuð í Svíþjóð, þar sem Ignite hefur tengt sprotafyrirtæki við stór fyrirtæki og opinbera aðila síðan 2017. Í dag starfar Ignite í Svíþjóð, Noregi, Danmörku og á Íslandi. Drift EA rekur Kveikjuna á Íslandi.

Ignite í tölum
- 2.000+ sprotafyrirtæki tengd
- 450+ fyrirtæki og opinberir aðilar
- 8.800+ pörunarfundir
- 788+ viðskiptasamningar
- 6 af hverjum 10 fundum leiða til frekari viðræðna

Þátttakendur
á Íslandi
Drift byrjaði verkefnið á Norðurlandi eystra árið 2024 með 10 fyrirtækjum
Drift EA hóf Kveikjuna á Norðurlandi eystra árið 2024 í samstarfi við
Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra (SSNE). Fyrirtæki á borð við Samherja, Rafeyri, Frost, Sæplast, Slippinn, Höld og Stefnu tóku þátt í vinnustofum þar sem áskoranir voru greindar og tækifæri til samstarfs við frumkvöðla kortlögð.
Árið 2026 færir Kveikjan út kvíarnar til Suðurlands í samstarfi við Háskólafélag Suðurlands og til Vesturlands í samstarfi við Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi. Sama aðferðafræði og reyndist vel fyrir norðan er nú notuð til að tengja fyrirtæki og frumkvöðla um allt land.
Í dag eru eftirfarandi fyrirtæki þegar þáttttakendur: Samherji, SS, Rafeyri, Bílaleiga Akureyrar, Frost, Límtré Vírnet, Sæplast, Holta Kjúklingur, Stefna, Slippurinn, Húsheild Hyrna, Nortek, SS byggir, Rotovia.

Samstarfsaðilar
Ignite Nordic er fjármagnað af menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu, Drift EA, Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV), Samtökum sveitarfélaga á Norðurlandi eystra (SSNE) og Háskólafélagi Suðurlands (HFSU).
