Slipptakan

Taktu skrefið með DriftEA. Prófaðu hugmyndina þína í hagnýtum vinnustofum Slipptökunnar sem eru sérstaklega hannaðar fyrir verkefni sem hafa verið í þróun og eru tilbúin í næsta áfanga.

Hér færðu tækifæri til að þróa hugmyndina þína áfram með stuðningi reyndra þjálfara og sérfræðinga. 

 

Taktu hugmyndina þína á næsta stig!

Hvað felst í Slipptökunni?

  • Þrjár stefnumótandi vinnustofur til að hraða framförum.
  • Aðstoð við þróun viðskiptaáætlunnar - finndu rétta viðskiptalíkanið fyrir þína hugmynd.
  • Kynning og endurgjöf - Lærðu að kynna hugmyndina þína og fáðu endurgjöf frá jafningjum og sérfræðingum.
  • Sérsniðin leiðsögn - Nýttu þér persónulega leiðsögn sérsniðna að þinni hugmynd. 
  • Vertu hluti af nýsköpunnar- og frumkvöðlasamfélaginu - Vinnum saman, deilum innsýn og raungerum hugmyndir okkar.

Næsta Slipptaka fer fram í maí og júní 2026

Við köllum eftir einstaklingum eða teymum sem eru komin örlítið áfram með hugmyndir sínar. Taktu verkefnið á næsta stig! Uppgötvaðu tækifærin sem bíða þín í Slipptöku DriftEA

 

Slipptakan er fyrir einstaklinga eða teymi sem eru með hugmynd á frumstigi.