Terramar
Terramar ehf. er tæknifyrirtæki á Akureyri sem þróar hagkvæman endurnýtingarbúnað fyrir landeldi. Markmiðið er að bæta vatnsgæði og lækka stofn- og rekstrarkostnað landeldisfyrirtækja. Frumgerð gefur til kynna umtalsverða hagkvæmni í endurnýtingu vatns. Verkefnið hefur hlotið styrk úr Tækniþróunarsjóði og er unnið í samstarfi við Háskóla Íslands á Hólum og fleiri aðila.
Að verkefninu standa Alfreð Steinmar Hjaltason, framkvæmdastjóri og Jón Ólafur Jónsson, tæknistjóri.











