Vaxandi byggð
Vaxandi byggð þróar samfélagsmiðað þorp á Hesjuvöllum með áherslu á sjálfbærni, fjölbreytt húsnæði og sterk tengsl milli íbúa. Markmiðið er að einstaklingar og fjölskyldur geti breytt húsnæðisaðstæðum sínum eftir þörfum án þess að yfirgefa samfélagið sitt. Verkefnið kannar hvernig ólíkar stærðir og gerðir íbúða, sameiginleg aðstaða og uppbygging í áföngum geta stuðlað að hagkvæmara húsnæði, betri nýtingu auðlinda og fleiri tækifærum til búsetu.
Að verkefninu standa Ísak Már Jóhannesson, Karen Mist Kristjánsdóttir, Helga Björg Jónasardóttir og Jóhannes Már Jóhannesson











