14. september 12:00
Mánudaginn 14.september kl.12.00 verður haldinn kynningarfundur hjá Drift um lánamöguleika Svanna-lánatryggingasjóðs kvenna.
Sjóðurinn veitir lán með lánatryggingu til fyrirtækja í eigu kvenna og auðveldar þannig aðgengi að fjármagni til atvinnuuppbyggingar og nýsköpunar. Sjóðurinn starfar í samstarfi við Landsbankann og hefur það að markmiði að efla þátttöku kvenna í atvinnulífinu, styðja við vöxt fyrirtækja og skapa ný tækifæri til verðmætasköpunar.
Á fundinum mun verkefnastjóri sjóðsins, Ásdís Guðmundsdóttir, kynna markmið og reglur sjóðsins en umsóknarfrestur um lán er til og með 15.október.
Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu sjóðsins www.svanni.is
/

Vantar stað fyrir viðburð?
Nýsköpun og Samvinna í Hjarta Akureyrar. Kynntu þér okkar hlýlega samvinnurými, þar sem skapandi hugmyndir og nýsköpun blómstra í samfélagi framúrskarandi hæfileika.