
24. nóvember 15:00-17:00
Segðu söguna með Eddu Hermannsdóttir - framkomunámskeið Driftar
Hvernig miðlar þú hugmyndum, skapar traust og nærð til fólks?
Drift EA býður til framkomunámskeiðs þar sem við skoðum söguformið sem verkfæri til að miðla hugmyndum, skapa tengingu og hafa áhrif.
Segðu söguna.
Edda Hermannsdóttir
Öll fyrirtæki eiga sér sögu, og það á líka við um fólkið sem stendur á bak við þau. En það er ekki nóg að eiga góða sögu, maður þarf líka að kunna að segja hana.
Í þessu erindi fjallar Edda um ferðalag sitt úr bankaheiminum yfir í rekstur apóteks og vörumerkja sem hafa fylgt íslenskum heimilum í áratugi. Hún deilir reynslu sinni af því að færa sig úr því að vera bankastarfsmaður í að vera apótekari og af því hvernig sama sagan þarf að ná til ólíkra hópa: starfsfólks, viðskiptavina, fjárfesta, samstarfsaðila og fjölmiðla.
Erindið er hagnýtt og ætlað frumkvöðlum og stjórnendum sem vilja koma betur fram, finna kjarnann í sögu sinni og segja hana af öryggi og einlægni, hvort sem er á sviði, í fjárfestakynningu eða á kaffistofunni.
Edda Hermannsdóttir er forstjóri Lyf og heilsu og hagfræðingur að mennt. Hún starfaði áður í tíu ár hjá Íslandsbanka, þar sem hún gegndi meðal annars stjórnunarstörfum á sviði markaðs- og samskiptamála, greininga og stefnumótunar. Áður starfaði hún sem aðstoðarritstjóri Viðskiptablaðsins og var eitt sinn spyrill í Gettu betur á RÚV.
Edda hefur mikla reynslu af framkomu og miðlun, bæði úr fjölmiðlum og atvinnulífinu. Hún er höfundur bókarinnar Framkoma , þar sem hún fjallar um hvernig hægt er að efla öryggi og færni í að koma fram og hefur haldið fjölda námskeiða um framkomu og tjáningu.
🗓️Þriðjud. 24. nóvember kl. 15:00-17:00
📍Messinn, Drift EA
/
Segðu söguna með Eddu Hermannsdóttir - framkomunámskeið Driftar
Hvernig miðlar þú hugmyndum, skapar traust og nærð til fólks?
Drift EA býður til framkomunámskeiðs þar sem við skoðum söguformið sem verkfæri til að miðla hugmyndum, skapa tengingu og hafa áhrif.
Segðu söguna.
Edda Hermannsdóttir
Öll fyrirtæki eiga sér sögu, og það á líka við um fólkið sem stendur á bak við þau. En það er ekki nóg að eiga góða sögu, maður þarf líka að kunna að segja hana.
Í þessu erindi fjallar Edda um ferðalag sitt úr bankaheiminum yfir í rekstur apóteks og vörumerkja sem hafa fylgt íslenskum heimilum í áratugi. Hún deilir reynslu sinni af því að færa sig úr því að vera bankastarfsmaður í að vera apótekari og af því hvernig sama sagan þarf að ná til ólíkra hópa: starfsfólks, viðskiptavina, fjárfesta, samstarfsaðila og fjölmiðla.
Erindið er hagnýtt og ætlað frumkvöðlum og stjórnendum sem vilja koma betur fram, finna kjarnann í sögu sinni og segja hana af öryggi og einlægni, hvort sem er á sviði, í fjárfestakynningu eða á kaffistofunni.
Edda Hermannsdóttir er forstjóri Lyf og heilsu og hagfræðingur að mennt. Hún starfaði áður í tíu ár hjá Íslandsbanka, þar sem hún gegndi meðal annars stjórnunarstörfum á sviði markaðs- og samskiptamála, greininga og stefnumótunar. Áður starfaði hún sem aðstoðarritstjóri Viðskiptablaðsins og var eitt sinn spyrill í Gettu betur á RÚV.
Edda hefur mikla reynslu af framkomu og miðlun, bæði úr fjölmiðlum og atvinnulífinu. Hún er höfundur bókarinnar Framkoma, þar sem hún fjallar um hvernig hægt er að efla öryggi og færni í að koma fram og hefur haldið fjölda námskeiða um framkomu og tjáningu.
🗓️Þriðjud. 24. nóvember kl. 15:00-17:00
📍Messinn, Drift EA
Vantar stað fyrir viðburð?
Nýsköpun og Samvinna í Hjarta Akureyrar. Kynntu þér okkar hlýlega samvinnurými, þar sem skapandi hugmyndir og nýsköpun blómstra í samfélagi framúrskarandi hæfileika.
