Styrkjadagur Driftar

18.08.2026 13:00 - 16:00


💡Á Styrkjadegi Driftar færðu hagnýtar upplýsingar, ráð frá reynslumiklum sérfræðingum og tækifæri til að spyrja beint þá sem þekkja styrkjaumhverfið best.


📍 Hvar:  Messinn 4. hæð Drift EA, Strandgata 1, Akureyri 

⏰Hvenær:  Þriðjudagurinn 18. ágúst kl. 13:00-16:00


📅 Á dagskrá:

🗣️ Erindi og kynningar (1 klst) 🗣️

Kynning á Styrkjasveit Driftar, farið verður yfir styrkjaumhverfið og styrkjadagatalið, erindi frá SSNE, erindi frá RANNÍS, María Dís Ólafsdóttir frumkvöðull deilir sínum bestu ráðum úr raunverulegum styrkjaumsóknum.


💡Opin viðtöl og spurningar úr sal (2 klst)💡

✍️RANNÍS, SSNE, Svava Björk Ólafsdóttir nýsköpunarstjóri hjá Háskólinn á Akureyri og María Dís Ólafsdóttir frumkvöðull og sérfræðingur í umsóknarskrifum verða þátttakendum innan handar og veita hagnýt ráð og persónulega aðstoð við styrkumsóknina þína.🎯


Fyrir hverja?  Hvort sem þú ert frumkvöðull, rekur ungt fyrirtæki eða ert að þróa nýja hugmynd í þínu fyrirtæki, þá er þetta kjörið tækifæri til að fá skýrari mynd af þeim styrkjum sem eru í boði og hvernig þú eykur líkurnar á árangri.


Eftir hefðbundna dagskrá verður tengslamyndun og happy hour í Messanum 🥂😊


✨Námskeiðið er eingöngu fyrir aðildafélaga✨


Sendu okkur póst á driftea@driftea.is til að skrá þig í aðild og tryggja þér pláss á námskeiðinu ásamt fræðslu- og skemmtiviðburðum sem framundan eru. 


Þar má nefna: Sölunámskeið -  Hagnýt vinnustofa í B2B sölu og samningatækni, markaðsnámskeið - stafræn markaðssetning og vörumerkjabygging, Pitch námskeið, bókhaldstækni, skilvirkni í rekstri og margt fleira!

Á næstunni

Styrkjadagur Driftar

Styrkjadagur Driftar

Skoða
Kvöldstund með Komið gott

Kvöldstund með Komið gott

Skoða

Vantar stað fyrir viðburð?

Nýsköpun og Samvinna í Hjarta Akureyrar. Kynntu þér okkar hlýlega samvinnurými, þar sem skapandi hugmyndir og nýsköpun blómstra í samfélagi framúrskarandi hæfileika.