27. nóvember 20:00

Drift EA býður upp á skemmtilega upphitun fyrir jólin með uppistandi, tónlist, karaoke og góðri stemningu!

Jól og annað vesen!

Jólin eiga að vera tími friðar og rólegheita. Einhvern veginn endum við samt á því að hlaupa sveitt um bæinn, rífast um jólaskrautið, hafa áhyggjur af næturlógistík jólasveinanna og reyna að muna hvað það var sem við áttum eiginlega að njóta.

Sambýlisfólkið Svava Björk Ólafsdóttir og Bjarni Þór Bragason blanda saman uppistandi, sögum og lifandi tónlist í nýrri jólasýningu þar sem íslenskar jólahefðir, Grýla, Jólakötturinn, jólasveinarnir, fjölskyldulífið, maturinn, sykurinn og ekki síst rómantíkin í desember koma öll við sögu. Enda er af nógu að taka þegar kemur að jólunum!

Bjarni reynir að halda uppi fallegri jólastemningu með tónlistinni á meðan Svava gerir sitt besta til að spyrja spurninganna sem enginn bað um.

Jól og annað vesen! er sýning fyrir alla sem elska jólin – og fyrir hina sem byrja að ofanda strax 1. nóvember.

Og svo heldur fjörið áfram! 🎶

Að uppistandinu loknu tekur Kolfinna við með partýkaraoke! Þá er um að gera að hita raddböndin, sleppa fram af sér beislinu og syngja sig inn í jólastemninguna.

Dagskrá kvöldsins

20:00 – Húsið opnar og gestir koma sér í gírinn

21:00 – Jól og annað vesen! með Svövu og Bjarna

Eftir uppistandið – Partýkaraoke með Kolfinnu!

🍷 Honesty Bar í Drift EA verður opinn og hægt verður að fá sér eitthvað gott í glas.

🎟️ Miðar og skráning🎟️

Frítt fyrir aðildarfélaga Drift EA!

Drift EA býður aðildarfélögum sínum frímiða á viðburðinn. Fjöldi frímiða er takmarkaður og því gildir: Fyrstur kemur, fyrstur fær!  Hafðu samband við kolfinna@driftea.is

Öðrum gestum er að sjálfsögðu velkomið að mæta og njóta kvöldsins.

Almenn miðasala: 3.500 kr. 

📍 Staðsetning: Messinn, 4. hæð, Strandgata 1, Akureyri.

Taktu þér frí frá jólastressinu, komdu að hlæja með okkur og vertu með í fjörinu fram eftir kvöldi!

Hlökkum til að sjá ykkur á Glöggi og glotti í Drift EA!

Glögg og glott í Drift EA! Uppistand og annað vesen.
27. nóvember

/

20:00

Vantar stað fyrir viðburð?

Nýsköpun og Samvinna í Hjarta Akureyrar. Kynntu þér okkar hlýlega samvinnurými, þar sem skapandi hugmyndir og nýsköpun blómstra í samfélagi framúrskarandi hæfileika.