Skilmálar aðildar að Messanum hjá Drift EA

1. Um aðildina

Messinn er samfélag einstaklinga, fyrirtækja og frumkvöðla sem vilja vinna í skapandi umhverfi, byggja upp tengslanet og taka þátt í öflugu nýsköpunarsamfélagi. Aðild veitir aðgang að þeirri þjónustu og þeim réttindum sem skilgreind eru hverju sinni í viðkomandi aðildarleið.

Drift EA áskilur sér rétt til að þróa og breyta þjónustuframboði, aðstöðu og viðburðum eftir þörfum.

2. Aðildarleiðir og verð

Í boði eru eftirfarandi aðildarleiðir:

Hyrna - Full aðild: 45.000 kr á mánuði

  • Aðgengi að Messanum 24/7 
  • Aðangur fyrir 3 gesti sem þú getur tekið með þér án aðildar, t.d. á fundi eða á viðburði hjá Drift EA. 
  • Aðgangur að öllum viðburðum Drift EA 
  • Aðgengi að næðisrýmum 
  • Afsláttur á salarleigu til að halda einkaviðburði 
  • Aðgengi að fundarherbergjum; Stefnið, Káetan, Kýraugað án endurgjalds.
  • Aðgangur að deiliskrifborðum með skjá
  • Ókeypis kaffi og sódavatn


Magri - Grunnaðild: 15.000 kr á mánuði

  • Verð: 15.000 kr. á mánuði
  • Aðgengi að Messanum 24/7
  • Aðgangur að öllum viðburðum Drift EA
  • Aðgengi að næðisrýmum
  • Aðstaða til að halda einkaviðburði tengda nýsköpun


Velji félagsmaður að greiða fyrir heilt ár í senn veitir Drift EA 20% afslátt af gildandi verði.

Öll verð eru samkvæmt gildandi verðskrá Drift EA hverju sinni.

3. Greiðslur

Mánaðargreiðslur eru innheimtar fyrirfram í upphafi hvers mánaðar.

Ársaðild er greidd fyrirfram fyrir allt aðildar tímabilið.

Greiðsluskylda helst í gildi þar til aðild hefur verið sagt upp samkvæmt ákvæðum þessara skilmála.

Drift EA áskilur sér rétt til að gera breytingar á verðskrá með a.m.k. 30 daga fyrirvara.


4. Uppsögn aðildar

Aðild að Messanum er með þriggja mánaða uppsagnarfrest.

Uppsagnarfrestur miðast við næstu mánaðamót eftir að skrifleg uppsögn berst.

Uppsögn skal send skriflega á netfang Drift EA - driftea@driftea.is

Greiðsluskylda helst í gildi á uppsagnartíma.

Dæmi:
Berist uppsögn 15. mars tekur hún gildi frá 1. apríl og lýkur aðild 30. júní.


5. Aðgangur og notkun

Félagsmenn skuldbinda sig til að:

  • Ganga vel um húsnæði, búnað og sameiginlega aðstöðu.
  • Sýna öðrum aðildafélögum virðingu og tillitssemi.
  • Fylgja reglum Drift EA um öryggi, aðgengi og notkun aðstöðu.
  • Nota aðstöðu í samræmi við lög og góða viðskiptahætti.

Óheimilt er að framselja aðild eða aðgangskort til þriðja aðila nema með skriflegu samþykki Drift EA.


6. Brot á skilmálum

Verði félagsmaður uppvís að ítrekuðum brotum á skilmálum, óviðeigandi hegðun eða misnotkun á aðstöðu getur Drift EA sagt aðild upp með tafarlausum hætti. Slík uppsögn veitir ekki rétt til endurgreiðslu þegar um alvarleg brot er að ræða.


7. Ábyrgð

Drift EA ber ekki ábyrgð á:

  • Persónulegum eigum félagsmanna.
  • Tjóni sem kann að verða vegna bilunar í búnaði, internettengingu eða annarri þjónustu sem Drift EA veitir.
  • Óbeinu tjóni sem rekja má til notkunar eða takmarkaðs aðgengis að aðstöðu.

Félagsmenn bera sjálfir ábyrgð á eigin búnaði og verðmætum.


8. Persónuvernd

Drift EA vinnur persónuupplýsingar félagsmanna í samræmi við gildandi persónuverndarlög og persónuverndarstefnu félagsins.


9. Breytingar á skilmálum

Drift EA áskilur sér rétt til að breyta þessum skilmálum.

Tilkynnt verður um verulegar breytingar með hæfilegum fyrirvara, að lágmarki 30 dögum áður en þær taka gildi.


10. Samþykki

Með skráningu og greiðslu fyrir aðild staðfestir félagsmaður að hann hafi kynnt sér og samþykkt þessa skilmála.